|
|
||||||||||||||||||||
Stig í leikjum:
POKER Svenni 14 Gunni 10 Ernir 9 Haukur B. 5 Snorri 5 Kriz 4 Hawk 2 Gaui 2 Silli 2 Þrándur 2 Gauti 1 Palli 0 Hersteinn 0 BORÐFÓTBOLTI ÍSLANDSMEISTARI Svenni 2009 Haukur 1 Svenni 1 2008 Svenni 12 - 6 Haukur 8 - 11 Ernir 0 - 3 Gaui 6 (21-23) Haukur 6 (23-21) ICY-CUP Haukur 1-(cup3) Gauti 1-(cup2) Hjalti 1-(cup1) ONLINE POOL Gauti 2 Haukur 5 Site Feed |
föstudagur, desember 11, 2009
Brian í kvöld Jæja þá verður eitthvað sögulegt í kvöld eins og alltaf með Brian :) Saga síðar. Flokkar: Almennt bull föstudagur, desember 04, 2009
Loksins í DK Já loksins getur maður slappað af og bloggað. Eða nei… það er einhvernveginn svo mikið að gera þó að það sé ekkert að gera að ég næ ekkert að einbeita mér að bloggi. Ég ætla þó að reyna að vera duglegri en í seinasta mánuði sem hlýtur að vera sá daprasti síðan ég byrjaði að blogga. Allavega þá er ég kominn til DK og dagskráin er svona að smalla saman. Hitti NFL/Danskt Öl á sunnudaginn, planað að hitta Rögguló og Helenu á miðvikudag og svo Brian á föstudag. Zhaveh á svo afmæli á fimmtudaginn og þá verður líka eitthvað brallað. Svo nóg að gera. Flokkar: Almennt bull laugardagur, nóvember 14, 2009
MediaMonkey
Hann er algjör snilld fyrir mann eins og mig sem er alltaf að pæla í tölfræði og er að breyta tags. Ég mundi þó líklega ekki mæla með þessum spilara fyrir notendur sem bara nota spilarann til að hlusta. Uppsetning og útliti er hægt að breyta að vild og ég held að þessi uppsetning sem ég er með núna sé alveg að gera sig eins og sjá má myndinni (smella á mynd til að stækka). Flokkar: Almennt bull, Tónlist miðvikudagur, nóvember 04, 2009
Nýjar myndir og video Var að setja inn nýjar myndir hér: http://picasaweb.google.com/mattimadsen og ný video hér: http://www.youtube.com/user/hawkhalf Flokkar: Almennt bull, Myndir, Video mánudagur, nóvember 02, 2009
Til hamingju KRiZ
Letistrumpar (liðið hans Svenna) eiga þó líka hrós skilið fyrir að hífa sig uppúr 13. sæti (næst neðsta) í það 3ja í einungis 6 mótum. Ég hlakka til að vinna á næsta ári Flokkar: F1 laugardagur, október 31, 2009
Bad Taste
Partýið var snilld eins og sjá má á myndum frá Ragga. Flokkar: Almennt bull, Helgin föstudagur, október 30, 2009
10 ára Ég man eins og það hafi verið í gær þegar ég fór út sem skiptinemi til DK í Danmark Designskole og kynntist þar Mette sem síðar varð til þess að ég flutti út til DK. Það eru 10 ár síðan. Þó að margt af þessu virðist hafa gerst fyrir löngu löngu síðan þá er margt enn svo ferskt og sterkt í minningunni að það virðist bara hafa verið fyrir nokkrum mánuðum. Eins og þetta myndaband. Man hvað ég elskaði það og það rifjar sko upp margar minningar :) Flokkar: Almennt bull, Video föstudagur, október 23, 2009
Leggja þetta bara niður Vill ríkisstjórnin ekki bara leggja niður Fæðingarorlofssjóð og “spara” þannig pening? Ég meina það mundi nú “spara” helling að þurfa ekki að borga út þessa peninga til nýbakaðra foreldra… Þetta mundi verða til þess að fólk mundi hætta að eignast börn sem verður til þess að færri börn verða í skóla sem einnig sparar, sem verður til þess að eftir 70-90 ár munu færri verða á elliheimilium. Svo eftir svona 100 ár þá er bara engin eftir á landinu og þá eru allar áhyggjur horfnar. Gott plan. Flokkar: Almennt bull sunnudagur, október 18, 2009
Guð blessi Ísland Fór með pabba, Dagrúnu og mági á Guð blessi Ísland. Þessi mynd lýsir nokkuð vel ástandinu á Íslandi seinasta vetur og ég fékk gæsahúð oftar en einu sinni. Þessi mynd var þó dálítið langdregin og er í raun meira svona sjónvarpsmynd sem mætti alveg stytta um svona 30 mín. En mjög áhugaverð engu að síður maður upplifði í raun gremjuna og stemminguna á nýjan leik og maður varð svona pínu þungur eftirá, því þrátt fyrir allt sem gerðist, öll þessi mótmæli þá hefur í raun ekkert breyst. Flokkar: Almennt bull fimmtudagur, október 08, 2009
Spilakvöld í gær Það mættu ekki margir á spilakvöld hjá Gauta í gær sem er gott því við spiluðum ansi gott tveggja manna spil sem ég man ekki hvað heitir. Það var þó mjög skemmtilegt og tókst mér að vinna nokkrum sinnum sem hlýtur að teljast gott þar sem ég var bara að læra spilið. Takk fyrir mjög fínt kvöld Gauti. Flokkar: Almennt bull sunnudagur, október 04, 2009
Góð helgi að baki Nokkuð róleg fjölskylduhelgi að baki. Við fjölskyldan kíktum á fyrsta leik Bandýfélags Reykjavíkur í gær og fylgdust þar með hörkuspennandi leik. Mínir menn (og konur) áttu svo sannarlega skilið að vinna þennan leik en því miður náðist einungis jafntefli. Skruppum svo til mömmu og borðuðum með henni. Sökum magaverkja eftir pilluát (sjá fyrri færslu) þá sleppti ég því að mæta í þrítugs-afmæli til KRiZ sem ég hefði þó alveg viljað kíkja á. Sunnudagurinn var einnig ljúfur. Fór með Matta á bókasafnið og svo fórum við fjölskyldan í afmælisboð heim til Ernis og fjölskyldu, en þau eiga einmitt hann Emil sem er ekki nema 10 dögum eldri en Lillian Líf. Hér eru einhverjar myndir frá helginni. Flokkar: Almennt bull, Helgin laugardagur, október 03, 2009
Hlaupabóla part II Ég er algjört frík. Ekki nóg að ég hafi þurft að láta taka úr mér 5 endajaxla að þá er ég núna með hlaupabólu í annað skipti. Reyndar heitir þetta víst ristill, en er sem sé sama veira og veldur hlaupabólu og hún fer víst aldrei úr líkamanum ef þú hefur fengið hana. Svona frík eins og ég fá svo að kenna á henni aftur. Það bjánalega er þó að ég hringdi í húðsjúkdómalækni þegar ég sá að þetta var nú ekki bara ein bóla (datt ekki í hug að fara til heimilislæknis því það er sko peningasóun). Nú mér var tjáð að ég gæti fengið tíma 20. okt. OK, ég þáði það en lét þó setja mig á biðlista. 15 mínútum síðar er hringt og sagt að það hafi losnað tími í hádeginu og ég sáttur tók þann tíma. Þegar læknirinn var búin að skoða mig og greina hvað þetta væri sagði hún að það hefði verið betra ef ég hefði komið fyrr Ég mæli með því ef þið hafið hugsað ykkur að fá einhvern húðsjúkdóm að panta tíma hjá lækni 3. vikum áður en þið fáið sjúkdóminn. PS. ég reyndi að panta tíma hjá Húð- og Kyn þar sem það er ókeypis, en sú sem svaraði í símann sá í gegnum það Flokkar: Almennt bull fimmtudagur, október 01, 2009
Engin babe og ekkert afmælisbarn Þetta er Dauðaspaðinn að mótmæla því að ekki eru 26 tímar í sólahring. Vona að þetta verði allt tekið til endurskoðunar. Babe-ur og afmælisbörn verða aftur komin 2. okt. Flokkar: Almennt bull sunnudagur, september 27, 2009
Blöndunartækjaævintýrið Um seinustu helgi þá keyptum við nýtt blöndunartæki fyrir sturtuna. Gamla var orðið það lúið að það gaf okkur bara volga sturtu enda erfitt að snúa til að breyta hitastiginu. Rúntuðum aðeins um og kíktum á úrvalið og verðið. Fundum mjög fínt tæki á 17.000 kall sem mér sýndist vera vel sloppið miðað við önnur. Þegar heim var komið þá skrúfaði ég það á rörin en það kom bara kalt vatn. Tækið bilað. Daginn eftir þá fór ég og skipti því og fékk nýtt. Skrúfaði það á og þar kom bæði kalt og heitt. En eftir smá stund tók ég eftir því að það kom heitt vatn úr baðvaskinum þegar ég skrúfaði frá kalda vatninu. Blöndunartækið nýja sem sé hleypti heitu vatni inní kalda rörið þó svo að það væri ekki í notkunn. Tækið bilað. Fór því enn aftur upp í Húsasmiðju þar sem engin var í pípulagnadeildinni til að aðstoða og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að tala við aðra starfsmenn þá vildi engin hjálpa mér, svo ég fór með tækið á upplýsingaborð og fékk það endurgreitt. Nennti sko ekki að versla frekar við fyrirtæki sem lætur kúnnan bíða í 30 mín eftir engu. Fór uppí Múrbúð og keypti mun einfaldara tæki á 7.000 kall. Skrúfaði það á og allt virtist virka, þangað til að það fór að leka frá haldinu sem blandar vatnið. Tækið bilað. Ég fór því enn einu sinni af stað með bilað tæki, uppí Múrbúð og ákvað að kaupa MJÖG einfalt tæki. 4.500 kall. Snýrð hægra megin til að fá heitt og vinstra megin til að fá kalt. Nema það þurfti millistykki til að ég gæti sett sturtuhausinn á það. Fór því í tvær aðrar búðir og fann það loks í Byko. Ákvað einnig að kaupa síu svo sandur mundi nú ekki skemma blöndunartækið. Millistykkið og sían kostaði jafn mikið og blöndunartækið, svo ég endaði með tæki + síur + millistykki á ca 9.000 kall. Þetta allavega virkar núna… 7,9,13 Flokkar: Almennt bull þriðjudagur, september 22, 2009
Konan er góð við mig þessa dagana
Þetta eru tvær seinustu kvöldmáltíðir sem konan eldaði handa mér. Til hvers að fara út að borða ef ég fæ svona heima Flokkar: Almennt bull Danmörk í desember Þá er miðinn kominn í hús. Ferð út þann 2. desember og heimför 3. janúar. Það er komið rúmlega ár síðan við fórum til DK svo kominn tími til. Flokkar: Almennt bull Bjór, stelpur, dauðaspil og annað áfengiDauðaspaðinn
|
Er að hlusta á: Top 7 seinasta vika: Eldri færslur
febrúar 2003
mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 desember 2008 janúar 2009 febrúar 2009 mars 2009 apríl 2009 maí 2009 júní 2009 júlí 2009 ágúst 2009 september 2009 október 2009 nóvember 2009 desember 2009 |
||||||||||||||||||